i galliu var litill bær

kosnull

Sunday, February 18, 2007

Ég var að horfa á eurovision í gær.

Skoðun mín er sú sama og þegar ég bloggaði um þetta fyrir fram þegar lagalisitnn var birtur. Af hverju eki að gefa fleirrum tækifæri. Sleppa þessum tveimur lélegu lögum hjá torfa og hleypa honum inn með besta. Sleppa þess vegna alveg roland hartwell. Þá hefðu komið hvað, ekki nema inn 4 nýir flytjendur og aukið fjölbreytni í keppninni.

Það jákvæða sem að ég sé við lagið sem Eiríkur Hauksson syngur er að Eiríkur Hauksson syngur það.

En einsog ég segi þá er ekkert svakalega cool að blogga um eurovsion. Samt eru allir að gera það? Allir hafa skoðun á þessu.

Það endar nú samt alltaf þannig að maður hreinlega nennir ekki að horfa á kepnina úti. Þetta er á fimmtudegi og þar dettum við út.

Monday, February 12, 2007

Hƨ!!!!!!!!

Vissu þið, að sigurvin vinur minn sem að gæti unnið heilt götugengi í hnífabardaga með pennanum einum saman er kominn með blogg? Bloggið er á vinsælum stað, blog.is og ber heitið sweethotmonkeylove.blog.is . Sigurvin lætur málefni líðandi stundar sig varða og bloggar af heift, ástríðu, vonleysi, einlægni og fullur af réttlætiskennd og sweet hot monkey love. Sweet hot monkeylove á sér einmitt hliðstæðu í lífi hans.

Sweet hot monkey love er einmitt fyrsta frumsamdalag saumaklúbbsins og hljómsveitarinnar Kristinu Logos. Heyr Heyr einsog margur myndi stynja.

Rólegheitahelgi afstaðinn. Fór í afmæli til Tinnu Ólafs. Þegar ég kem inn er verið að tala sænsku inn í eldhúsi, ensku inn í stofu og svo nýmóðins íslensku við sófaborðið.

Ég er í föruneyti við annan mann. ´
Oskar örn hálfdánarson. Eftir þetta party varð ég margsvísari um sjálfan mig. Ég komst að því að ég er talinn góður á gítar, það er allt annað að sjá mig með klipptan hausinn, ég klæði mig einsog Bolvíkingur.

Annars mjög fínt afmæli hjá tinnu. Spjallaði við gott fólk.

Ég og óskar tókum rölt. Sáum mjög mikið af fólki. Hvað er líka með fólk niður í bæ og vera kóngar. Fólk labbar mann frekar niður heldur en að víkja smá einsog við reyndum alltaf. Samt labbaði fólkið frekar beint á mann, skemmtilegt. Fullt fólk er mikilvægasta fólk í heimi.

Wednesday, February 07, 2007

ég var í ökumati í dag. Til hamingju ég. Ég fæ líklegast ekki fullnaðarskírteini. Þannig að aftur 25ára verð ég að fara í ökumat. SWEEET!!!!

annars hef ég lítið annað að segja. Ó jú. Ég er alþekktur nöldrari. Ég fór í klippingu um daginn. BTW! mína fyrstu í bænum.

Ég mæti, konan segir: hvernig villtu hafa það?
Ég: HMMM!!! bara snyrta þetta.
Konan: Eigum við ekki að gera þetta svolítið töff? Setja það svona til hliðar?
Ég: hmmm? jú jú hví ekki!

Hún byrjar að greiða í gegnum hárið og segir: Þú notar ekki shampoo er það?
Ég: nei eitthvað lítið! frétti að ef maður hætti því þá yrði það bara alltí lagi! Er það ekki í lagi?
Konan: komdu í vaskinn og skolum aðeins af því.

Ég hugsaði bara jæja ok!

Hún þrífur það og byrjar að klippa. Svo þegar hún er komin svolítið á leið spyr hún: notar þú gel?
Ég: nei ekki mikið!
Hún: þá breyti ég þessu aðeins
Ég: ööö ég get alveg notað það
Hún: já þú mættir aðeins byrja á því er það ekki.

Svo líkur þessu og reikningurinn kemur. Ég borga fyrir hárþvott og klippingu 4800 krónur(íslenskar)

Monday, February 05, 2007

SuperBowl XLI Half Time Show - PRINCE

vá. hef ekki séð mörg halftime show en þetta er flott. Og prince er náttúrlega fáranlega svalur

Sunday, February 04, 2007

djamm

ég fékk mér í glas á laugardaginn. Eftir ellefu fer bakkus í fýlu við mig. Lætur mig þegja og tekur allt líf úr mér. Ég finn fyrir honum toga mig niður. Ég þræti og líkaminn streitist á móti. Ég losa mig við það sem ég var ekki búinn taká inn af bakkusi og restinni af kvöldmatnum. "Kollateral damids" einsog sagt yrði í stríði varðandi hvernig kvöldmaturinn varð fórnarlamb átaka minna og bakkus við að reyna að fá að skemmta mér í friði.

Ég fer að skjálfa og ég verð fölari en andskotinn. Ég neyta að gefast upp! Fæ mér vatnssopa. Það átti að "njúka" bakkus burt. En allt kom fyrir ekki. Hann hafði ósýnilegan hlífðarskjöld líkt og geimverurnar í independence day.

Bakkus slær síðasta höggið. Ég segi vinum mínum að halda áfram án mín, ég komist ekki lengra. Þeir neita að skilja mig eftir en ég segi að það sé runnið að kvöldi í mínu "djammsesessjóni" þessa nóttina. Bakkus hrellir mig restina af nóttinni og lætur mig líða vítiskvalir.

Svo vakna ég! Þá mætir systir bakkusar, þynnkan í hús. Helvítis mellan! Ég reyni drekkja henni í kóki, kæfa hana með börger. En allt kemur fyrir ekki. Þá byrla ég henni blásýru á hennar leveli, paratabs. Eftir það hélt hún kjafti!


Annars bara fínt djamm og fín helgi!

Friday, February 02, 2007

EMO ALL THE WAY



ef ég væri emo þá yrði ég svona. Og hver sagði að ég gæti ekki verið töff!!!!

Monday, January 29, 2007

Ég vil byrja á því að bjóða rögnvald velkominn í klúbb íþróttamann ársins. Ég er hinsvegar sjálfkjörinn formaður af því ég vann tvö ár í röð. Sjáum hvað röggi gerir.

Hinsvegar. Ég spái aldrei í framtíðinni. Ég ákvað því að spá í framtíðina þegar ég les og sé alla í kringum mig vera að gera eitthvað við líf sitt. Verkfræðingar, lögfræðingar, ferðalangar, viðskiptafræðingar, geislafræðingar(það er samt ekki eins svalt fag og maður hugsar sér) og allur helvítis fjandinn í heiminum.

Ég sem sagt fór að spá í þrítugsafmælinu mínu. Hafa það svolítið grand(það er ef ég verð á lífi þá, maður veit nefnilega aldrei).

Ég myndi bjóða öllum sem mer þykir vænt um. Allavega reyna það. Ég býst hinsvegar líka fastlega við að vera einstæður þá þannig að ég þarf ekki að vera að spá í vinkonum og vinum makans.

Þannig að þetta yrði eitt alsherjar afmæli. Ég sé þetta fyrir mér. Veislustjóri yrði? tjahh það er úr mörgu að velja. Ég fengi bara ladda því að hann er hlutlaus og kostar ekkert mikið þá. Orðinn gamall og hálf slappur(innskot boggara: þó ekki nema 67 ára)

Í matinn yrði tommaborgarar. Svo yrði eitthvað fínt fyrir þá sem verða orðnir über snobbaðir þá. T.d snævar og fleirri.

Fæ Ægi frænda(btw besti kokkur í heimi) til að elda eitthvað afrískan grænmetisvelling, framandi og heillandi þannig að allir geti sagt: framandi og spennandi.

Á meðan gúffum ég, þór og valdi bróðir í okkur hamborgara og hlægjum að vitleysingunum. Og hamborgarabúllutommi segir okkur að sjálfsögðu sögur á meðan hann flippar börgerana.

Fyrstir á svið til að starta fjörinu verða að sjálfsögðu Pabbi og muggi.

Svo kemur röggi með ræðu. Þá veðrast allir upp, og orðnir hálf rakir og vilja fá að tala. En veislustjórinn laddi tekur það ekki í mál. Þá á eftir mugga fylgja Ragga grö og raggi bjarna og syngja ljúfa anna fyrir crowdið. Eftir þeim fylgja KK og ellen með ó ljúfa líf og svo kemur maggi eiríks og tekur blús í g með pabba. Eftir fylgir kk og tekur kóngur einn dag með Magga eiríks.

Athyglisvert við þetta party er að veislustjórinn er ekkert að skemmta. Heldur bara að halda stjórn á veislunni og stendur sig með prýði. Hann tilkynnir næsta atriði sem er Rögnvaldur magnússon ásamt halldóri gunnari pálssyni og tak birgir þú átt von. SVo hoppar þór upp á svið og tekur suðureyri er löngu búið að losa sig við guð. Eftir það stígur hljómsveitin á svið og Elín sveins stígur fram. Ásamt bróðir sínum þór og taka "wake me up" með evenesence.

þÁ fær sigurvin nóg og rýkur upp á svið og tekur mhljóðnemann og syngur "ég las það í samúel". Þar birtist Rögnvaldur Magnússon á svið og syngur með honum kannski er ástin.

Þarna eru leikar farnir að æsast og laddi heldur nú samt stjórn á veislunni og fær kolbein upp á svið til að vera með spilagaldra og vera nakinn undir svuntunni.

Eftir það stígur bjarni pétur á svið og heldur tölu. Stutta einsog honum er einum lagið enda leyfir laddi ekki lengri ræðu því að við höfum bara húsið til 11:30.

Svo er það hnotubrjóturinn í tunglskinsóperuendanum. Kan stígur á svið og leikur fyrir dansi.

Væri hægt að hugsa sér betra kvöld. Harla.